Fréttir 2013

Tækniundrið Skjaldborg !

22 May, 2012

Ekki nóg með að við höfum sett upp íslenska & enska heimasíðu fyrir hátíð,heldur er líka komin skjaldborg.com í símana.

Þetta er svo flott að við eigum ekki orð.
Takk Takk Takk – Samúel Þór Smárason fyrr vefsíðugerðina & Tryggvi Hilmarsson fyrir hönnunina !

 

Hákon, ferða og sjálfboðaliðastjóri Skjaldborgar fór í sund.

21 May, 2012

Hákon nýtti sér hina einstöku aðstöðu sem er á Patreksfirði til sundiðkunar. Hann er betri maður fyrir vikið.

 

1-2-3-4

DAGAR Í HÁTÍÐ !

Þessi mynd kemur sjóðheit í flugi frá London á miðvikudaginn

Two Years at Sea er mynd eftir Ben Rivers, og er önnur tveggja mynda sem CPH:DOX sýnir á Skjaldborg í ár.

Ægifögur sigurmynd CPH:DOX. Dómnefndin þar sagði m.a. um myndina :
‘Two Years at Sea’ was awarded for its convincing depiction of the euphoric feeling of being immersed in an elemental environment. “An enigmatic work that emanates from another place and time and justifies its own existence,” the jury said.

Þar hafið þið það !

….og trailerinn :

Laus gistipláss á Patreksfirði

 

Það eru enn til gistipláss á Patreksfirði , sem er hægt að sjá allt um undir Ættleiðing Skjaldborgara.
Það eru í flestum tilfellum hús Patreksfirðinga sem flytja aftur heim til mömmu, eða til vina sinna um helgina, og leiga Skjaldborgurum húsin sín.  Ítarlegar upplýsingar á heimasíðunni.

 

Alda sjóræningi og Valli móttökustjóri heimsækja sundlaugina á Patreksfirði

20 May, 2012

5 dagar !

Hér sést Samúel Þór Smárason, vefsíðusmiður og sýningarstjóri Skjaldborgar benda okkur á það sem við vorum kannski ekki alveg búin að átta okkur á.

Að það eru 5 dagar í hátíð !

Jess, okkur fannst það vera miklu lengra.

Opnunarmyndin

Á föstudagskvöldinu munu kynnar hátíðarinnar, Ragnar Ísleifur Bragason & Loji Höskuldsson setja hátíðina á sinn einstaka hátt.
Því næst setur Sammi Sýningarstjóri fyrstu mynd Skjaldborgar 2012 af stað, sem í þetta sinn er Hreint Hjarta eftir Grím Hákonarson.
Er komin hefð fyrir einhverju ef það er gert 2 ár í röð ? Hátíðin opnaði nefninlega í fyrra með mynd um prest líka.

Trailerinn er frábær, og myndin stórgóð líka.

Sveitaball og Sjávarréttaveisla

18 May, 2012

Löðrandi hresst dansiball verður haldið í Félagsheimili Patreksfjarðar á lokakvöldi hátíðarinnar. Stjörnubilaður dans og fjölbreytt skemmtidagskrá sem telur m.a. hljómsveitina Draugabanana, the Shits og skemmtiatriði sem sigurvegari hátiðarinnar 2011, Steinþór Birgison heldur utan um. Hann mun leita uppi alla bassa og baritóna á hátíðinni fyrir það atriði, en annars gefur hann ekkert upp !

Á ballinu verður Einarinn veittur fyrir bestu heimildamynd Skjaldborgar að mati áhorfenda.

Atli Snær Keransson slær upp balli fyrir hátíðina í ár, en hann ætlar líka að elda fyrir hátíðargesti sjávarréttaveislu fyrr um kvöldið.

GAMAN !

Heiðursgestur sendi okkur nokkrar myndir til að velja úr…

17 May, 2012

Þær voru svo góðar að við ákváðum að deila þeim öllum með ykkur.

Á þeim má sjá að Max Kestner hefur mörg andlit. Það er hægt að álykta mikið um karakter út frá því hvaða myndir það velur að sýna okkur hinum. Við hlökkum til að hitta Max, kynnast honum og kynna hann fyrir ykkur.