Það er okkur sönn ánægja að kynna samstarf dönsku heimildamyndahátíðarinnar CPH:DOX og Skjaldborgar.
CPH:DOX byrjaði árið 2003 og á þeim skamma tíma hefur hún orðið að einni stærstu og áhrifamestu heimildmyndahátíð í Evrópu. Á hverju ári í nóvember fyllir hátíðin sali Kaupmannahafnar með yfir 200 heimildamyndum frá öllum heiminum. Hún leggur sig fram við að sýna það nýjasta og áhugaverðasta innan geirans. Í ár verða sýndar tvær myndir frá seinustu hátíð.
Crulic
e. Leikstjórann Anca Damian sem var Sigurvegari Amnesty Award 2012 .
&
Two years at sea
e. Leikstjórann Ben Rivers sem hlaut aðalverðlaunin : DOX : Award 2012
Eftir hátíðina mun CPH:DOX velja eina mynd af dagskrá Skjaldborgar, og sýna á hátíð sinni í Kaupmannahöfn í nóvember.