Fréttir 2013

Gleðilegt sumar!

25 April, 2013

Nú í fyrsta skiptið er Skjaldborg- Hátíð íslenskra heimildahátíða ekki fyrsta hátíð sumarsins, heldur verður hún haldin 15-17 ágúst 2013. Þetta finnst okkur ansi krassandi tilraun og nýtum tækifærið til að prófa ýmislegt annað af í leiðinni, sem kemur í ljós hvað er þegar nær dregur.

Tryggvi Hilmarsson & Samúel Þór Smárason hafa unnið hörðum höndum svo það væri hægt að gefa ykkur & okkur þessa heimasíðu í sumargjöf. Takk !

Síðan mun halda áfram að þróast og fitna næstu vikurnar, og við munum leggja okkur fram við að halda síðunni lifandi með videoum, vitleysu og hagnýtum upplýsingum fram yfir hátíð.

Við erum búin að gera aðgengilegt yfirlit um allar heimildamyndir sem sýndar hafa verið á Skjaldborg- hátíð íslenskra heimildamynda, og það er að finna í nýjum fídus : Sarpinum.

Í dag, sumardaginn fyrsta opnum við fyrir umsóknir að þátttöku 2013. Umsóknareyðublaðið er að finna hér á heimasíðunni og umsóknarfresturinn rennur út 15. júní.

E-mailin okkar og símanúmer eru undir “Hátíðin” ef það er eitthvað sem ykkur leikur hugur á að vita.

Sjáumst í ágúst !

Fortíðin grafin upp

30 October, 2012

Við erum þessa dagana að fullgera Sarp Skjaldborgar, þ.e. að safna saman öllum myndun sem hafa verið sýndar, og hafa yfirlit yfir þær aðgengilegar á heimasíðunni.  Við grófum að því tilefni upp gömlu dagskrárnar okkar sem hér má sjá smá brot úr .

Brett uppá ermar – SKJALDBORG 2013

25 October, 2012

Nú eru stíf fundarhöld hafin með haustinu, og lögð eru drögin að Skjaldborg- Hátíð íslenskra heimildamynda í 7. sinn !

Fyrst á dagskrá er að hafa samband við Kína og fá veðurstjórnunarkerfið lánað, svo það komi ekki rigningadagur eins og í fyrra.

Ef þið hafið aðrar góðar hugmyndir um hvernig hægt sé að gera hátíðina betri, og betri, ekki byrgja það inni heldur sendu okkur línu.  HÉR finniði öll símanúmer og e-mailadressur .

 

Við hlökkum til að heyra frá ykkur, já, og svo að hitta ykkur aftur á næstu hátíð !

Skjaldborgar hópurinn

 

Fleiri myndir af hátíðinni…og fleiri minningar

1 June, 2012

Hér eru dásamleg minningarbrot tekin af Gunnari Gunnarssyni fyrir okkur sem voru á Skjaldborg í ár, í fyrra eða á næsta ári.

Það er einnig hægt að sjá myndir í “Hátíðin í myndum” flipanum, og á facebook síðunni.

Áður óséð móment af Kórnum, sem sungu við undirspil lúðrasveitarinnar baunarinnar, Plokkfisksveislan, laxinn sem Atli Keranson eldaði fyrir okkur…og fleiri LIMBÓ móment!

 

 

Skjaldborg 2012. Takk fyrir komuna allir !

29 May, 2012

Þið voruð öll frábær !

Takk fyrir jákvæðnina og áhugann fyrir hátíðinni, stórgóðar heimildamyndir , og yndislega samveru.

Hér eru myndir frá honum Friðriki Erni sem var á hátíðinni með okkur hinum í ár.  Við erum að safna myndum af þessum  3 dögum, og setjum eins mikið inn á næstu dögum og við komum höndum yfir.

- Hinn sigurvegari Skjaldborgar 2012 – ANNA FINNBOGADÓTTIR LIMBÓdrottning 2012 ! Til hamingju !

Og svo The shits, sem deildu með okkur 2. & 3. samspili hljómsveitarinnar á föstudags & sunnudagskvöldinu, og gerðu það svo stórvel.

Hreint hjarta!

28 May, 2012

Vann!

Kosning !

27 May, 2012

Nú eru 2 seinustu myndirnar ad fara i gang, og áhorfendakosning hefst eftir það! … Hér sést janus með eintak af kosningaseðli sem verður safnað saman eftir sýningarnar á óskin, og hrikalegir!
Og kynnarnir okkar sem eru að halda lokarãðu- núna!

Her sjást svo tinna og janus, sem taka við atkvæðum í þennan fagra kassa.
Og svo ballið !

Max Kestner eftir Plokkarann

26 May, 2012

Hér sjást þeir Max & Janus taka til brot úr myndunum hans Max & videoskissur sem við fáum að sjá og heyra þá tala um á eftir kl. 20:15

Við rúllum fyrst myndinni Max by chance, ( 29 min ) , svo er spjallað og spurt, og svo er sýnd Draumar í Kaupmannahöfn ( 80 min ).

Góða skemmtun !

 

Lúðrasveitin baunirnar & karlakórinn Eitthvað – INNKALL

Við erum að smala inn í karlakórinn Eitthvað sem heldur æfingu i sjóræningjahúsinu á morgun, sunnudag, eftir áhorfendakosninguna og fyrir ballið. Allir sem halda lagi, eða hafa gaman að söngi, eða eru reffilegir eru hvattir til að mæta! Hér eru myndir af þeim Sigurði sem er í forsvari með Steinþóri Birgis.

Hópnum slegið saman

25 May, 2012